ProMedia

Flest árangursrík fyrirtæki treysta á fjölbreytta blöndu af efni í markaðsstrategíum sínum. Og það er rétt! 

Alþjóðleg tölfræði sýnir að sambland af kvikmyndum, myndböndum, gagnvirkum og prentuðum bæklingum, og markvissum færslum á samfélagsmiðlum skapar öfluga blöndu af efni, miðlum, hönnun og stafrænni dreifingu. Þessi nálgun hjálpar fyrirtækjum að hámarka sýnileika, efla þátttöku viðskiptavina og auka frammistöðu allra miðla og rása. 

ProMedia samskiptapakkinn veitir ykkur rétta blöndu af efni, miðlum, hönnun og dreifingu, sem gerir ykkur kleift að tengjast áhorfendum ykkar og auka samkeppnishæfni ykkar.  

1/5 vara í pakkanum

Fagleg kvikmynd

Gerið fyritækið ykkar persónulegra og raunverulegra með faglegri kvikmynd. Það er öflugt tæki til að halda gestum áhugasömum á heimasíðu eða  til að heilla áhorfendur í ýmsum aðstæðum. 

Hvort sem þið eruð að laða að hæfileikaríkt fólk, sýna fram á vörur eða þjónustu, eða leggja áherslu á sjálfbærni, þá eykur kvikmyndin áhrif skilaboðanna. Það er sannfærandi leið til að gera vörumerkið ykkar minnisstætt og skilja eftir varanleg áhrif.

2/5 vara í pakkanum

Myndband fyrir samfélagsmiðla

Styrkið viðveru ykkar á samfélagsmiðlum með stuttu, áhrifamiklu myndbandi. Hannað til að miðla einföldum skilaboðum, grípa athygli og vera auðvelt að deila áfram. 

Líkt og kvikmyndin, inniheldur samfélagsmiðla myndbandið þætti eins og tónlist, texta, Call to Action og útgáfu – allt hönnað til að stoppa skrollið og leiða áhorfendur í gegnum viðskiptavinaferlið ykkar. 

3/5 vara í pakkanum

Tilbúnar færslur fyrir samfélagsmiðla

Aukið netveru ykkar og tengið við markhópinn ykkar með því að dreifa samskiptapakkanum ykkur á samfélagsmiðlum á áhrifaríkan hátt.
Þið fáið faglega samfélagsmiðlafærslur með áhugaverðum texta og myndum, hannaðar til að hámarka áhrif.

Njótið þægindanna við tilbúnar færslur sem munu hjálpa við að hámarka áhrif og tengslanet á samfélagsmiðlum.

4/5 vara í pakkanum

Gagnvirkur bæklingur

Gagnvirki bæklingurinn fer lengra en hefðbundinn bæklingur. Hann færir söguna ykkar til lífs í áhugaverðu stafrænu sniði með spennandi gagnvirkum eiginleikum. Fangið athygli lesandans með þáttum eins og hreyfingarhönnun, cinemagraphs, myndasöfnum og fleiru. Gleymið stöðugum PDF skjölum. Með gagnvirka bæklingnum bjóðið þið viðtakendum einstaka og dýrmæta lestrarupplifun sem hvetur til virkni í samskiptum við efnið.

5/5 vara í pakkanum

Prentaður bæklingur

Skapið varanleg áhrif með prentuðum bæklingi. Þessi pakki inniheldur hágæða prentaða útgáfu af bæklingnum ykkar, fullkominn til að skapa minnisstæðar upplifanir.

Notið prentaða bæklinginn sem viðbót við nafnspjaldið ykkar á móttökum, fundum, sýningum og viðburðum. Það er öflug leið til að bjóða mögulegum viðskiptavinum, samstarfsaðilum, hugsanlegum umsækjendum og öðrum eitthvað áþreifanlegt til að fletta í gegnum, sem gerir þeim kleift að upplifa fyrirtækið á algjörlega nýjan hátt.

Heillandi gagnvirkir þættir sem gefa efninu líf

Njótið heillandi gagnvirkra þátta í gagnvirka bæklingnum ykkar. Svona aðgreinið þið ykkar fyrirtæki frá samkeppninni.

Myndasafn

Gerir lesendum kleift að skoða fleiri myndir, á einum stað.

360˚ panorama

Sýnir heildarmynd af rými, staðsetningu eða öðru, fyrir raunverulega upplifun.

Motion design

Fangið áhorfendur með hreyfanlegri grafík, myndum eða texta.

Vef tákn

Beinið lesendur ykkar að vefsíðu, vefverslun, samfélgasmiðli eða hvert sem þið viljið.

Cinemagraph

Gefið myndum líf með því að bæta við þær einföldum myndbandsáhrifum.

Snap myndband

Bætið við áhugaverðu ívafi með stuttum, áhrifaríkum myndböndum af ykkur eða starfsfólki (viðbót)

Aukin vitund á netinu

ProMedia samskiptapakkinn er fullkomin blanda af miðlum og efni fyrir notkun á netinu og utan. Hann gefur frábært úrval af markaðsefni fyrir alskyns tilgang.

Aðgangur að ykkar eigin efnismiðstöð

Fáðu aðgang að ykkar eigin efnismiðstöð með MySite sem safnar öllu efni úr samskiptapakkanum ykkar. Þetta felur í sér rafræna og prentaða bæklinga, myndir og myndbönd (ef einhver eru). Þetta veitir ykkur efni fyrir alla vettfanga.

Tímasparnaður og þægindi

Með vinnslu á yfir 30.000 árangursríkum verkefnum, höfum við prófað og fullkomnað ferli, sem tryggir að það sé fljótlegt og þæginlegt fyrir ykkur frá upphafi til enda.

Án endurgjalds

Samskiptapakkinn ykkar er fjármagnaður af birgjum ykkar og samstarfsaðilum í gegnum Co-Branding og auglýsingar. Það af leiðandi er verkefnið án endurgjalds fyrir ykkur.

Leyfðu okkur að vinna verkið

Með reynslu frá þúsundum verkefna vitum við hvernig á að stjórna ferlinu og sjá til árangursríks verkefnis frá upphafi til enda. Leyfðu okkur að sjá um verkið fyrir þig!

Frá því að tryggja fjármögnun til að hanna og framleiða allan samskiptapakkann ykkar, munum við afhenda faglegt efni sem hefur áhrif. Deilið sögunni ykkar með okkur, og við búum til heillandi og faglegan pakka sem gefur sögunni líf.

Four people in a conference room looking at brochures and smiling.

Auðveld deiling á netinu​

Tölvupóstur ​

Fáið hámarks sýnileika fyrir fyrirtækið ykkar með því að deila gagnvirka bæklingnum í undirskriftum til núverandi og tilvonandi viðskiptavina, birgja og samstarfsaðila.

Heimasíða ​

Bætið við gangvirkum þáttum s.s. kvikmynd og gagnvirkum bæklingi á heimasíðuna ykkar til að gestir staldri lengur við.

Samfélagsmiðlar ​

Skapið vörumerkjavitund, umtal og heimsóknir á heimasíðu með því að deila faglegum myndböndum og hluta af gagnvirkum bæklingi á samfélagsmiðlum.

MyPresentation

Gerir ykkur kleift að sýna kvikmynd og gagnvirkan bækling á stórum skjáum – fullkomið fyrir ráðstefnur, stóra fundi og sýningar.

Two colleagues are sitting at a table and looking at brochures while pointing and talking.

Straumlínulagað ferli, frá upphafi til enda

Allt er straumlínulagar og hámarkað fyrir ykkar þægindi. Ferlið er uppbyggt með skýrum skrefum fyrir fjármögnun, hönnun og afhendingu, við sjáum um allt heila klabbið!

Það eina sem við þurfum frá ykkur er listi yfir hugsanlega auglýsendur og stuttan fund til að kynnast ykkur og fyrirtækinu ykkar betur. Við bjóðum einnig uppá áframhaldandi stuðning, aðstoð við notkun og ráðgjöf til þess að hámarka gildi samskiptapakkans.

Fyrri Verkefni

Við hjálpum meira en 30.000 viðskiptavinum á ári hverju með samskiptapakka. Hér er er nokkur vel valin verkefni.

ProPaper

Vélsmiðja Orms og Víglund ehf.

ProPaper

MANNVERK

ProPaper

BULANDSTINDUR

ProPaper

Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins